16.10.2008 | 20:14
Þetta er nú ekki beint góð frétt í dag!
Ef að þetta er virkilega hegðun þessara einstaklinga sem þjóðin hefur alið, fer ég fram á að þetta fólk verði gert ábyrgt gerða sinna, flutt heim í járnum bara til að hægt sé að svipta það ríkisborgararétti og senda það úr landi aftur. Ég verð algerlega brjálaður að sjá svona drullumall, og skammast mín fyrir þetta fólk. Ekkert skrítið að við séum illa liðin sem þjóð í dag, ef að svona fólk hefur verið andlit okkar útávið um árabil. ÖMURLEGT!
![]() |
Ingibjörg hannaði lystisnekkjuna 101 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Varstu alveg jafn brjálaður í hvert skipti sem þú fórst eða ferð í Bónus og borgar minna en annarsstaðar fyrir matinn þinn? Varstu alveg jafn brjálaður þegar þau gáfu hundruð milljóna í Barnaspítalann eða milljónir í mæðrastyrksnefnd í desember ár hvert í mörg ár?
Held að við ættum öll að róa okkur í árásunum og hugsa bara jákvætt fram á veginn :)
Steini Thorst, 16.10.2008 kl. 20:47
Ég myndi alveg sætta mig við að þau seldu snekkjuna og sendu peninginn þeim sem misstu allan sparnað sinn í Glitni.
Greta Björg Úlfsdóttir, 16.10.2008 kl. 21:01
Greta,
þau voru búin að kaupa snekkjuna áður en þau keyptu í Glitni.
Áhugasamur (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 21:09
sorgleg meðferð á "almannafé" - gjafir til Barnaspítala ofl frá Baug var hið besta mál en held að þeir peningar hafi að mestu leiti komið úr svokölluðum pokasjóð þ.e. gjaldið sem þú viðskiptavinur Baugs borgaðir fyrir plastpokann í verzlunum Baugs
Jón Snæbjörnsson, 16.10.2008 kl. 21:12
Áhugasamur, það kemur málinu andskotann ekkert við hvort þau keyptu fyrr.
Nenni ekki að útskýra það fyrir þér ef þú sérð það ekki sjálfur.
Greta Björg Úlfsdóttir, 16.10.2008 kl. 22:01
Sko, þessar peningagjafir til Barnaspítalanna og Mæðrastyrksnefndar voru auglýsingabrellur til þess að stimpla það inn í huga þjóðarinnar að þetta væri rosa ,,næs" lið sem hugsaði um lítilmagnann. Virðist hafa virkað í nokkrar hræður...
Þetta var bara pínöts af því sem þeir áttu. Svipað og ég myndi gefa 1000 kall og gæfi út fréttatilkynningu vegna þess.
Og hvað heldurðu að við séum núna að borga þessar ,,gjafir" og margfalt til baka?
Ekki þennan aulaskap og meðvirkni...
MB (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 22:31
Steini Thorst: Þessar gjafir sem þeir gefa eru bara smámunir miðað við eignir þeirra. Með því að gefa svona gjafir fá fyrirtæki vissan skattaafslátt svo þetta kemur út á það sama hjá þeim. Jóhannes í Bónus virðist yfirleitt alltaf kalla á fjölmiðla þegar hann gefur stórar gjafir. Þjóðin á greinilega að taka eftir því.
Oooog Bónus er ekki ódýr búð. Til að byrja með var Bónus lágvöruverslun og Hagkaup dýrari en með eðlileg verð, þar var t.d. hægt að fá föt á góðu verði. Það sem feðgarnir gerðu svo var að kaupa Hagkaup og 10/11 og verðið rauk upp. Þetta eru mjööög dýrar verslanir í dag. Í samanburði við þessar verslanir virðist Bónus vera ódýr búð. Við höfum verið plötuð rækilega af þessum mönnum. Og ég þakka þeim ekki fyrir að plata þjóðina. Þjóðin hefur misst allt verðskyn og heldur að Bónus sé ódýr búð.
Lára (IP-tala skráð) 17.10.2008 kl. 00:02
Þú ert ekki einn um að vera pirraður yfir svona fréttum Frikki minn.
Það sem ég ætlaði að leggja til málanna kemur Lára svo vel til skila að það hefur ekkert upp á sig að endurtaka það.
Fyrir ykkur hin, bæði Steina Thorst og svo Áhugasaman sem þorir ekki að kenna sig, haldið þið virkilega að feðgarnir, frekar en nokkur annar sölumaður, hafi verið í viðskiptum fyrir einhvern annan en sjálfan sig? Það hefur enginn kaupmaður í sögunni verið í viðskiptum til að hugsa um kúnnann!!
Og þeir sem benda á pokasjóðinn og þessar PS2 tölvur sem fara inn á Barnaspítalann ættu að bera saman þær upphæðir og svo lifistandardinn á þeim Bónusfeðgum og slá svo aðeins af dýrlingatalinu.
Vilhjálmur Óli Valsson, 18.10.2008 kl. 22:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.